Nýjir og breyttir tímar í myndabloggi EB. Um leið og ég opinbera nýja og glæsilega síðu langar mig að setja fram Getraun B2 en þessa má geta að það eru rétt rúm 4 ár síðan þessi slóð var stofnuð 19. mars 2003.
í þessari getraun kemur nokkuð margt til greina og jú því nákvæmara því betra.
Sigurvegari í þessari spennandi getraun er Hildigunnur snillingur.. Hún Getur sótt verðlaun í Hólminn.
Ég vil fá mjög svo nákvæmt svar og mun þeim mun nákvæmara svar þeim mun meiri sigurvegari.
Sigurvegar í þessari getraun var sjálfur Einar Skaftason. Honum verða veitt verðlaun við fyrsta tækifæri. Nákvæmasta svarið kom frá honum Coke light tappi. Ég að vísu hefði viljað fá að heyra líka að það væri búið að taka bláa plastið innan úr, en svona er þetta.. Til hamingju Nafni
mánudagur, mars 12, 2007
Þar hafið þið það.
Gler var það jú!
En ekki kom svarið, eins og þetta var nú auðvelt svona eftir á að hyggja.
Þetta er nánartiltekið sparpera úr IKEA.
mánudagur, mars 05, 2007
Jæja gott fólk nú skora ég á ykkur að koma með e-ð gáfulegt á þessa. Verðlaunin eru þau sömu og síðast.