mánudagur, mars 12, 2007

Þar hafið þið það.

Gler var það jú!
En ekki kom svarið, eins og þetta var nú auðvelt svona eftir á að hyggja.
Þetta er nánartiltekið sparpera úr IKEA.

mánudagur, mars 05, 2007

Jæja gott fólk nú skora ég á ykkur að koma með e-ð gáfulegt á þessa.
Verðlaunin eru þau sömu og síðast.

föstudagur, mars 02, 2007

Jæja þá...

Er þá ekki kominn tími á fara að koma með rétt svar í þessari Getraun sem hefur svosem ekkert með klaka að gera heldur 100% andstæða.



Jú Sprittkertaþráður var það hehe....

fimmtudagur, febrúar 22, 2007

Getraun A4


Nýjungar að þessu sinni.
Gefin verða út verðlaunahint ef svo má segja. En það er gert til að fólk geti einnig reynt að sjá út hvað sé í verðlaun.

Verðlaunahint: "Ég tóna ei stöðva en vindur er burt, þarfnast vart vöðva ef hlýju er þurft." (Bara + ef þið getið sagt til um hvað það er)
Jú Valtýr er sigurvegari í Getraun A3 og hlýtur að launum DvD mynd.


Þess má geta að Júlíus vildi meina að það þyrfti að koma fram að þetta væri Gulrótaflysjari en það sem þessi leikur gengur út á er ekki að nafngreina heldur að sjá hvað sé þar á ferð.

fimmtudagur, febrúar 15, 2007

Getraun A3
(Lokar u.þ.b 19.feb)


Verðlaun: DVD mynd
No winner !!!!!!


Jú rafmagnskló var það ekki svo flókið eftir allt
Málið var að annar pinninn sást bara.
Þannig að ekki alveg örsmátt.
En nú er ég með marga elda í járninu og hefst ný Getraun A3 í kvöld, ekki missa af því.



föstudagur, febrúar 09, 2007

Getraun A2 (opin til 15.feb) (leikreglur)




We have a winner!!

Þór Hefti...*

Vinningshafi getur vitjað vinnings í Hólmgarð 4 eftir helgi...

Næsta keppni hefst á morgun og verða vegleg verðlaun í boði og kvet ég alla til að vera með.

laugardagur, febrúar 03, 2007

Getraun A1

Þá hefst leikurinn formlega og þið einfaldlega segið mér af hverju myndin er!
Þess má geta að það þarf ekki endilega að sjást í allt myndefnið. (leikreglur)







föstudagur, febrúar 02, 2007

Jæja sko... Nú er ég að fara af stað með nýjan leik hér á blogginu og verður það svaka fjör.
Já ég vil meðvirkni í hæstu hæðum.
Leikurinn verður þannig að birt verður reglulega partur af mynd eða mynd af parti af hlut (skilja ekki allir) jú.. og til að byrja með verður þátttaka frí en það er aðeins fyrsta mánuðinn og sá sem náð hefur bestum árangri fram að því byrjar með 50% afslátt þá.. en þá verður þátttökugjald lagt á og vegleg verðlaun í boði. Leikurinn fer þannig fram að þeir sem telja sig vita hvaða hlut er um að ræða notast við commentakerfi síðunnar og láta skoðun sína í ljós. (ath. að aðeins má koma einu sinni með tilgátu og sá sem fyrstur er til að koma með rétt svar fær verðlaunin.)
Þegar byrjað verður að innheimta gjald fyrir þátttöku mun sá með rétt svar aðeins teljast sigurvegari ef heimabankinn segir "YES CONTESTANT HAS PAYED" þannig að það er von á þrusustuði og þrælvirkni hér í bráð.
Leikur hefst uppkomandi helgi.

Host EB:

fimmtudagur, febrúar 01, 2007

Ég var aðeins að spá.. en ég fór einn daginn á myspace.com og gerði síðu með tilheyrandi.. en svo þegar nokkur reynsla var komin á það þá sá ég að það var alveg eins hægt að vera með sjónvarpið niðri í þvottahúsi eins og að vera með myspace... þannig að þá var mér hugsað til gamla góða bloggsins..
Sem sagt.. eða ef svo má segja ef segja má.. þá held ég að heima sé best og hér sé mig að finna.... alltaf, mis- glaðlyndan þó!

fimmtudagur, desember 21, 2006

jæja smá blogg í tilefni dagsins..

Var að uppfæra trackerinn minn. En já jólaundirbúningur á fullu og einkunnir komnar í hús, og ekkert smá fínt þar á ferð, þó ég segi sjálfur frá. Strákurinn dafnar vel og ég kannski set link inn á hann fljótlega.. hehe. já þar eru náttl fullt af myndum og svona.. jæja þarf að prenta út myndir svona fyrir nóttinar..

Læðist inní nóttina með lokuð eyrun.
EB.

fimmtudagur, september 14, 2006

Í dagsins önn á haustönn hum

hér koma 2 myndir sem ég tók í dag önnur er af Mangúsi þar sem hann var að fara inn í hús hæstaréttar og reynir að hylja andlit sitt.



Hér er svo aftur á móti Magni minn sem ég er nýbúinn að kaupa, hún er alveg geggjuð þessi. svo þegar maður þarf að halda sér uppi þá er bara að sturta í sig kaffi og má þá með sanni segja að það sé komin Magnavaka



eða eins og á henni segir Magni fica sjá betur hér sko:

miðvikudagur, september 13, 2006


Hvað segiðið þá.. já spurning um að blogga bara meira... aðeins svona af því að nú kemur maður til með að hafa svo góðan tíma svona til að dunda sér og svona.. vó ekki meira ,,svona? í bili.
Annars hef ég verið aðeins svona að djöflast í að þykjast vera svaka góður ljósmyndari og hef verið að troða mér inn á ljosmyndakeppni.is en hef þó hrökklast þaðan með brostið hjarta og brotnar vonir.
Caffee E.B er að gera góða hluti í Hólmgarðinum.. en já ég splæsti á eina með öllu um daginn.. mylur,þjappar hellir og gengur frá allt sjálf. Einn latte takk.

Já það fer nú að styttast í að ég setji hér inn svona before & after myndir af íbúðinni svona bara til gaman.. no offense Teodóra.

Jú Veggfóður að byrja aftur.. best að kíkja á það flotta í dag. Hafið trú á mér... ansk. hafi það ég get þetta.

föstudagur, maí 05, 2006

Hvað er að frétta?
Jú jú góð spurning. Þá erum við loks búin að kaupa fínu fínu íbúðina sem beið handan við hornið. Hólmgarður var gatan.
Fínn staður til að búa til hreiður fyrir alla litlu ungana.

Læt hérna myndir fylgja með.











þriðjudagur, mars 28, 2006

Hæ Hæ góðir hálsar. long time já ég veit.. æ bara brjálað að gera í skólanum og þess háttar.. en nú langar mig bara svo mikið að deila með ykkur enn og aftur hvað snillingurinn Chris Daughtry er mikill snillingur. Þarna tekur hann hið flotta lag I walk the line með Johnny Cash og gerir það jafnvel betra. En þeir sem misstu af American Idol nú á mánudag geta hlustað á flutninginn hér.. þvílíkt og annað eins.. ég fékk gæsahúð og það gerist vanalega bara þegar Dísa stríkur nöglunum gegnum hnakkahárin.
We hava a winner folks.. hann er Glæsó..

Bis morgen..

Einsi kjellinn.

miðvikudagur, mars 15, 2006

Jæja gott fólk.. nú fer að styttast í stórafmæli hjá KEllinum og það er 26 ára afmæli á laugardag og svo 4 ára bloggafmæli sama dag. Hef ég sett inn hér nokkrar skemmtilegar tillögur af gjöfum handa mér fyir þá sem hafa áhuga að kíkja í 10 dropa.

Kaffikrúsar hitari í bílinn 2.690 í Gismo



súlu fyrir dísu mína 5.990 í gismo virkar svona


Boxhanska fína





Svart viðarbæs úr IKEA 395kr




Sushi hnífur


Lítil skál fyrir soya sjá nánar hér

miðvikudagur, mars 01, 2006


Held ég hafi fundið íbúðina mína áðan.
En ég á stórt verk fyrir fyrir höndum en það er að sannfæra Dísu um að flytja í Hafnarfjörð.
Þetta er samt allt sórt ? ennþá.